Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Ásgarðs

Sjá nánar um Ásgarð á heimasíðunni www.asgardur.is

Ásgarður er handverkstæði fyrir fólk með þroskahömlun og hefur verið starfrækt frá 1.október 1993.

Í Ásgarði eru framleidd leikföng og skyldir munir úr tré, en einnig er unnið með ull, skeljar, bein, steina og leður.

Öll framleiðsla Ásgarðs er seld í verslun Ásgarðs sem er til húsa að Álafossvegi 22 í Mosfellsbæ. Verslunin er opin mánudaga tli og með  fimmtudaga frá kl: 09.00-12.00 og 13.00-15.30. Verslunin er lokuð á föstudögum.

Menningarstarfsemi blómstrar í Ásgarði og er þar margt gert til að fjörga andann, m.a. fengist við söng og leiklist.

Starfsemi Ásgarðs grundvallast á þeirri hugmynd að ekki er litið á fötlun sem vandamál heldur möguleika.

 

Ásgarður handverkstæði - Álafossvegi 22 - 270 Mosfellsbæ - Sími 567 1734